Shopping security
Velkomin/n til Zanzibar! Sómakólfurinn sem stundum er kallaður gimsteinn Zanzibar kemur upphaflega frá austurhluta Afríku og var víða að finna á eyjunni Zanzibar fyrir utan strendur Tanzaníu. Plantan þolir vel gleymsku eigenda sinna og spjarar sig vel í flestum skilyrðum innandyra. Hún er einstaklega seig í þurrkatíð þar sem hún getur geymt mikinn vatnsforða í rótarbolta sínum. Hún skartar vaxkenndum dökkgrænum laufum á sveigjanlegum stilkum og er dugleg að búa til nýja stilka.
Sómakólfur er frábær fyrsta planta en einnig tilvalin planta ef þú ert ekki viss hvort þú viljir mikið stúss og bras í kringum plönturnar þínar.
Hjá okkur í Blómstru er plantan oft kölluð útborgunar-plantan. Það er vegna þess að allir í Blómstruteyminu eiga einn eða fleiri sómakólf og hefðin er að vökva plöntuna þegar við fáum útborgað. Skemmtilega kjánaleg regla til að muna að sjá um sómakólfinn. Þess vegna heyrist oft á kaffistofunni þegar útborgunardagur nálgast... “þú manst svo að vökva kólfinn á föstudaginn!”
Ships within 48 hours · Estimated delivery Sep 19 - Sep 24
US$40
Get nowSign up to your membership to get coupons up to
15%
Get nowOpportunity to enjoy order discount up to 15% off
Top-Converting Item to Boost Your Average Order